Prófíll

  • Nafn: MR HARD

Auglýsing

.


Innskráningar kubbur

EITTHVAÐ SEM ALLIR ÆTTU AÐ SKOÐA

31. ágúst 2010 klukkan 21:33
Hér er frábær ábending sem Binni Morgan kom með og ætti bara að vera skyldueign eða jafnvel vera innifalin í félagsgjaldinu hjá vélhjólaíþrótta klúbbunum þar sem það er hagur okkar allra að öll stolin hjól finnist strax og að hjólaþjófnuðum verði útrýmt og þjófar teknir úr umferð.
Eitt er víst að ég er að fara að koma þessu fyrir inní mótornum hjá mér eða eins og Raggi félagi hann ætlar að koma þessu fyrir inní stellinu hjá sér þar sem útilokað er að finna það.
Ég linka hér inn upplýsingum um Depil þetta er algör snilld .

Depill veitir aðgang að staðsetningu þinni eða hluta sem þú vilt vita hvar eru hverju sinni. Þú getur haldið henni fyrir þig eða miðlað til þeirra sem þú vilt.
Depil má líka nota sem öryggistæki til að sjá óeðlilega hreyfingu t.d. á vinnuvélum sem staðsettar eru fjarri byggð eða á öðrum stöðum þar sem rafræn vöktun hentar.
Svona virkar Depill
Depill virkar þannig að þú færð lítinn skynjara sem þú getur borið á þér eða sett á tækið eða hlutinn sem þú vilt vita hvar er. Skynjarinn mælir staðsetningu með GPS tækni og uppfærir upplýsingar um hana jafnóðum inn í gagnageymslu Depils. Með því að skoða kort á depill.is vefnum er hægt að sjá staðsetninguna og fylgjast með henni breytast við hverja nýja uppfærslu gagnanna.
Depill notar GSM kerfið til að koma upplýsingum um staðsetningu, hraða og stefnu inn á vefinn. Þú velur svo hverjum þú gefur upp þessa staðsetningu. Depil er hægt að nota sem örugga geymslu staðsetninga, eða sem stað fyrir hvern sem er til að koma inn og sjá staðsetningu þína hvenær sem er, allt eftir því hvað hentar þér.

Depill er einfaldur í notkun og aðgengilegur á vefnum eða úr síma með vafra hvar og hvenær sem er.
 Depill fyrir íþróttir og tómstundir
Með því að nota Depil getur þú á einfaldan hátt sýnt staðsetningu þína þeim sem þér hentar á augabragði. Depill hentar til dæmis íþrótta- og tómstundaiðkendum sem vilja opinbera staðsetningu sína á einfaldan hátt. Þannig má leyfa áhangendum að fylgjast með framvindu langhlaups, hjóla- eða ökuferðar svo dæmi séu tekin. Depill hefur verið notaður í tengslum við íþróttaviðburði og af afreksfólki ýmiskonar til að miðla staðsetningu í rauntíma. Þetta gerir keppni eða viðburð meira lifandi fyrir þeim sem heima sitja og veitir innsýn og sjáanleika sem erfitt getur verið að fá nema með þeirri tækni sem Depill býður upp á

Þessi færsla er læst með lykilorði.

31. ágúst 2010 klukkan 20:09

ÞEGAR ÞESSI GAUR VAR Í TRIALSPORTINU

29. ágúst 2010 klukkan 22:07
Yuotube er snildarstaður sem er frábært að vafra um ég rakst á flotta youtube frá #270 sjálfum sem er þessa daganna í barneignarleyfi frá trialsportinu en kemur klárlega sterkur inn með haustinu ef ég þekki hann rétt hér er Valdi á camerunni að mynda Árna #100 þegar hann var upp á sitt besta sem trialmaður og nú er komið að því að hann fari að hisja upp um sig og komi með comeback inn í trialsportið þar sem stór trialvakning er núna í gangi.

og svo annar urban cross fílingur hér á ferð.

TIL SÖLU HUSABERG FE 450 2009

29. ágúst 2010 klukkan 20:39
Til sölu HUSABERG FE 450 árg 2009

Til sölu HUSABERG FE450 árg 2009
Hjól með  beinni innspýtingu, x-senon framljós,sex gíra kassa ,nýleg dekk,gott viðhald,nýtt auka plast með factoty límmiðasetti ,ekið 4000 km ný demparalega,
Allar uppl í 6619292

TIL SÖLU GAS GAS EC 250

29. ágúst 2010 klukkan 20:16
TIL SÖLU GAS GAS EC250 götuskráð endurohjól á hvítum númerum
eftirárshjól sem kom á götuna í juni 2010
hjólið er tvígengis með sexgíra kassa ,FMF púst, tvær frampípur,ný dekk.

allar uppl í 6619292 gott verð. 

TRIALHJÓL TIL SÖLU

29. ágúst 2010 klukkan 19:04
Til sölu lítið notað og vel með farið trialhjól sem vert er að skoða
Beta Rev 270 racing árg 2007 en er eftirárs hjól sem var nýskráð 2009
mikið af aukahlutum .

Verð 740 þús fæst á 690 stg uppl í 6619292.

USSSS ÞETTA VELDUR VALKVÍÐA

26. ágúst 2010 klukkan 22:08
Það eru akkurat svona youtubarar sem er ekki hollt að horfa á þegar maður er búinn að plana föstudags enduro eftir að ég sá þessa þá er kominn bullandi valkvíði og trialandinn byrjaður að toga hressilega i mig .
Nú er bara spurnig hvort virkir trialmenn hér sem hafa verið að notast við trialsvæðið rotti sig ekki saman og haldi smá vinnu/hjóladag og lagfæri aðeins svðæðið  fyrir komandi hardtrialseason þar á næstu mánuðum svæðið er smá laskað eftir öll þau pólskupartý sem svæðið hefur þurft að þola í sumar já nýbúarnir eru ekki að sýna trialinu þá virðingu sem það á skilið og nota svæðið sem urðunarstað .

Annars er hér annað gott með einum flottasta urbankeyrara sem uppi hefur verið.
Mikið  svakalega sem það er mikill metnaður í þessum videoum hjá þeim franska og þau eru alltaf að verða meir og meir pro

BOLÖLDU TVÍGENGIS GLEÐI

26. ágúst 2010 klukkan 21:36
Tvígengisklúbburinn er það eina sem skiptir máli þessa daganna í hardendurosöfnuðinum og hafa menn verið hressilega duglegir við að viðra sig sumir kanski of duglegir og eru dæmi þess að menn gangi við göngugrind þessa dagana eftir tvígengisgleðina uppá síðkastið(ég nefni engin nöfn hér til að hlífa Einari Bjarna við allri þeirri stríðni sem hann myndi nú lenda í ef að það færi á veraldar vefinn úppss......þetta átti ekki að fara hér inn)
Árni #100 og Geiri Gas dróu mig út í svakalegt tvígengis hardenduro gleði kvöld og verð ég að segja að ég fékk 100% út úr túrnum við að reyna að hanga í kvikindunum um allt Bolöldusvæðið túrinn var kominn út í hið óendanlega um tíma og voru menn orðnir ansi sveittir í gili andskotans .

Annars eru menn að hjóla grimmt og ekkert gefið eftir þegar tvígengistryllitækin fljúga um Bolöldusvæðið og ilmandi blár tvígengisreykurinn leggst yfir eins og niðdimm austfjarðarþokan ekki það að hjólið mitt sé eitthvað að reykja þið ættuð að sjá hvað KTM-ið  hjá Vigga reykir!!! já talandi um Vigga er ekki kominn tími til að Viggi fari að sjá sér fært að hjóla eitthvað fyrir þessu bevítans kvennastandi!!!

ÞÁ ER TRIAL SEASONIÐ SKOLLIÐ Á

24. ágúst 2010 klukkan 17:28
Seinni partur sumars og haustið er alltaf besti tími trialsportsins.
Við Óli Urban ákváðum að trekkja trialtækin í gang en það er almannarómur að ekkert trialhjól hafi verið gangsett innan borgarmarkanna í sumar og er það nánast rétt nema þá kanski ef Keflararnir hafi komið til borgarinnar .
Þar sem einn harðasti ökumaður landsins sem löngu er orðinn goðsögn í mótorcrossi er nú að koma af fullum þunga inní trialheiminn er um að gera að spýta aðeins í lófana í von um að eiga einhvern séns þegar norðan drengurinn B Morgan mætir í næsta trialtúr með okkur félögunum .

Nú er að fara af stað grimmt trial season fram eftir hausti og var ekki annað að sá en að Óli verði þræl hertur á næstu vikum Kallinn fór hreinlega á kostum og gaf ekki tommu eftir.
Við fórum um vel valinn einkasvæði sem trialklúbburinn Palli hefur löngu sýnt fram á hefðarrétt yfir og notað svo árum skiptir.

Það klikkar aldrei að hella yfir sig trialandanum og ilma af dýrlegum tvígengisilm það er nefnilega þannig að ef það á að vera gaman þá verður það að vera tvígengis og trialsportið er að sjálfsögðu tvígengis.

TVÍGENGISVIKA FRAMUNDAN

22. ágúst 2010 klukkan 20:49
Það verður kátt á hjalla í tvígengisheimum í komandi viku og menn farnir að gera sig klára fyrir sveitta 2-T túra þar sem hámarks bruni mun nást út úr svitakófinu sem er framundan.
Hér er einn youtubari sem fær mann til að íhuga að læra portugölsku eða bara hringja í Kristján Grétarson og fá hann á GasGasinu með í vikunni í alvöru burðar tvígengis enduro á hinu ofurtjúnnaða tvígengis monsteri.

Síðast en ekki síst höfum við hér einn youtubara fyrir Einar Bjarna, Árna #100, Sigga Nikk og Vigga Pornó og ættu þeir allir að skoða þennan youtubara vel því þarna er eitthvað á ferð sem við verðum að skoða aðeins betur já Bolaldan hefur gert góða hluti í sumar og nú er spurning að koma ferskir inní haustið því slóðakerfið þar er aldrei betra en á haustin.

OSET RAFMAGNS HJÓLIN ERU LOKSINS KOMIN

20. ágúst 2010 klukkan 20:33
Það er nokkuð ljóst að landinn er að rétta úr kútnum og allt hjal um kreppu er að fjara út eða það var allavega það fyrsta sem kom uppí huga minn þegar ég kom við á Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur áðan og menn voru í óða önn að skrúfa saman heilu stæðurnar af rafmagns barna trialhjólum já þið heyrðuð rétt Bifreiðaverkstæði Reykjavikur er orðið miðstöð trialsportsins á Íslandi og nokkuð ljóst að þar ræður ungmenna andinn ríkjum þessa dagana og þar er verið fyrst og fremst að huga að grasrótinni því nú er verið að raða saman tveimur stærðum af barna hjólum sem bæði feður og börn biðu í ofvæni eftir að sjá þegar kassarnir opnuðust.

Hjólin eru á sitthvorri dekkjastærðinni og stellin eru fyrir sitthvorn aldurshópinn síðast en ekki síst er sitthvor stærðin af rafmótor í hjólunum og er alveg magnað hversu öflugir þessir rafmótorar eru enn sem betur fer er stilliskrúfa á þeim þar sem foreldar stilla hversu kraftmikið hjólið er.

Einar hefur talsverða reynslu af þessum hjólum þar sem Ingvar sonur hans er búinn að vera að hnoðast á svona hjóli síðan á síðasta ári og kemur hjólið mjög vel út alveg hnökralaust með öllu og rafhleðslan endist aveg ótrúlega allur frágangur og smíðavinna virðist vera til fyrirmyndar.... og nú er ekkert annað en að koma upp barna trialgarði fyrir þessi hjól t.d. niður í Laugardal eða í Skemmtigarðinum í Gufunesi.  

FRAMLEIÐENDUR TRYGGJA SÉR MENN FYIRIR KOMANDI SEASON

19. ágúst 2010 klukkan 22:45
Ríkjandi heimsmeistari úr E-3 frá 2009 Ivan Cervantes sem nú keppir í E-2 fyrir KTM 2010 hefur gert tveggja ára samning við GAS GAS .
Ívan Cervantes hefur sýnt það og marg sannað að hann er einn fremsti enduro ökumaður heims um þessar mundir og nú þegar landað fleiri enduro titlum heldur en flestir samferðamenn hans.

Eins og sannir "karlmenn" gera er fagnað Ívan Cervantes hér með tárin í augunum eftir frækilegan indoor endurocross sigur.
Ívan Cervantes hefur hefur verið að gera mjög góða hluti í indoorinu og er einn af fáum sem hefur tekist að hrella Taddy Blazuiak með gríðarlega tekniskum akstri.
Það verður heldur betur skemmtilegt að fylgjast með þeim bersjast nú þar sem þeir eru ekki lengur liðsfélagar.

Hér á þessari mynd er Ivan Cervantes búinn að leggja Taddy Blazuiak og Mika Ahola sem er einn af bestu enduromönnum heims líkt og Ivan Cervantes og nokkuð ljóst að þarna hefur sætur indoor sígur átt sér stað fyrir hann.
Ívan cervantes er klárlega mjög góð viðbót við keppnislið GG og nokkuð ljóst að þetta á aðeins eftir að styrkja það til muna og gera heimsmeistarakeppnina en meira spennandi þar sem öll evrópsku liðin eru heldur betur að sækja á um þessar mundir.

Af uppreisnar seggnum David Knight er það að frétta að hann var að landa Fullum aðgang að KTM keppnisliðinu eftir stóra BMW floppið virðist KTM vera að ná að fyrirgefa honum liðshlaupið og hafa veitt honum fullan spons enda er hann langleiðina með að landa heimsmeistara titli fyrir 2010 .
David Knight hefur ekið undir merkjum Faoli keppnisliðsins í sumar á óbeinum styrk frá KTM en nú er hann samningsbundinn í tvö ár

Síðast en ekki síst þá er það minn maður þessa dagana Cristoper Nambotin hann var að innsigla við GG tvö ár til viðbótar hjá þeim í GG og nokkuð ljóst að keppnisdeildin þar er að verða ansi þétt af meisturum.

Nambotin hefur verið að gera góða hluti og hefur raðað öllum titlum sem hægt er að komast yfir á franskri grundu í sinn hlut í heimsmeistarakeppni  er það annars helst að frétta að hann var óheppinn að skemma hjá sér gírpetala og við það missti hann kónginn aðeins frá sér en ekki er öll von úti ennþá  ekkert búið fyrr en eftir síðasta race þá kemur í ljós hver stendur uppí í E3 þetta árið.

BRESKA MEISTARAMÓTIÐ

14. ágúst 2010 klukkan 22:54
Hér er á ferðinni gott video frá fjórðu umferð í breskameistaramótinu góða skemmtun

BLUE MONRAIN HASTFERÐ

12. ágúst 2010 klukkan 20:26
Við hjá Blue Mountain viljum minna á haustferðirnar okkar sem eru á dagskrá á næstunni.  Haustið er skemmtilegur tími til að ferðast um landið okkar því að veðrið er gjarnan stillt og gott og birta skemmtileg.  Einnig hefur "túristum" fækkð mikið og því færri á ferðinni.  Það finnst okkur skemmtilegt og því er þetta góður tími.  Menn geta komið á sínum eigin hjólum eða fengið hjól hjá okkur.  Í öllum ferðunum er matur og gisting innifalin, ásamt fylgdarbíl, leiðsögu, og hjá þeim sem fá hjól hjá okkur, - mótorhjól og tryggingar.  
Enduro ferð

Þessi ferð hefst í Hólaskógi að morgni laugardags.  Við hjólum inn á Suðurlandshálendið, ca 200 km leið og endum daginn aftur í Hólaskógi.  Grillum, borðum, drekkum og eigum frábæra stund saman um kvöldið.  Eftir góðan morgunmat og léttar teygjur og fettur, höldum við af stað aftur inn á hálendið og förum annan frábæran hring.  Á þessum slóðum eru margar skemmtilegar leiðir í boði.  Við hjólum á KTM EXC 250/450 hjólum.  Allt eru þetta götuskráð hjól og með allar tryggingar í lagi.  Þetta er frábært tækifæri fyrir vana sem óvana, konur og karla og alla hina ! Hringdu núna og fáðu frekari upplýsingar.  Sími 5787860 eða info@bluemountain.is
Dagsetningar: 11-12 september  og  18-19 september
Verð: kr. 59.000,- fyrir þá sem fá hjól hjá okkur, kr. 30.000,- fyrir þá sem koma á eigin hjóli.

DRAUMALANDIÐ

11. ágúst 2010 klukkan 17:40
Ef það hefur einhvern tímann verið ástæða til að dusta rykið af hjóli og gömlu keppnisskónum þá er það núna!!!!
Ef ég hef einhvertíman verið kjaftstopp og virkilega ekki trúað því sem ég sé að gera þá var það í gær!!!!
Ég á ekki nógu stórt endurolýsingar orð yfir svæðið sem síðasta endurokeppnin fer fram í, þetta er bara rugl !
Við fórum ég, Einar #4 og Hjörtur #220 svona til að ganga frá pappírsmálum við landeiganda og líka til að taka  út nokkra parta af fyrirhuguðu brautarstæði  þar sem við allir höfum mjög ólíkar skoðanir á enduro og erum allir  frekar ólíkir keyrarar  þá var planið að skiptast á skoðunum hvort þetta brautarstæði hentaði öllum eða hvort eitthvað væri betra en annað í því landslagi sem er í boði fyrir brautarlagningu.

Það sem ég upplifði þarna í gær var hugsunin er þetta "LÖGLEGT" þegar ég æddi eftir hrikalega flottum afgirtum hestastíg með aðkeyrðum eðaljarðvegi og raðaði upp öllum gírkassanum ég fékk snertingu af víðáttubrjálæði í Dómadalskúkaslæt fíling þurfti svo skyndilega að nauðhemla og taka vínkilbeyju inná kjarrivaxið kindaspor sem hægði vel á mér en gaf glænýjan vínkil á enduroið nú var allt í einu komið glænýtt umhverfi til að hjóla í ég var staddur í ævintýralega þéttu kjarri þar sem aldargamall niðurgrafinn slóði eftir fjórfættlinga liðaðist um hóla og hæðir .
Tvígengis söngurinn og blái ilmurinn aftan úr pústinu hjá Hirti#220 gerði umhverfið nánast lygilegt þar sem við æddum í halaróu inn eftir geðveikt flottum dal skyndilega opnaðist dalurinn og við tók slétta sem gerði halarrófuna að óreglulegri akstri sem bauð uppá fram úr akstur og racið var skyndilega komið á fullt, þegar sléttunni lauk tók enn eitt landslagið við og skyndilega voru þeir félagarnir Einar og Hjörtur komnir í brjálaðan sandfíling sem þeim leiddist ekki og dró nú verulega á milli manna og sandmanna!!! þar sem ég reyndi allt hvað ég gat til að halda í þá félaga á moldarblönduðum sandkafla sem liðaðist um á milli grasigróinna moldarbarða .

Það að þarna sé að fara að fara fram Íslandsmót í enduro er alveg magnað  og ef einhver hefði sagt mér fyrir fimmárum að bondi sem lifir á hestamensku væri búinn að skaffa Vík hestajörðina sína undir íslandsmót í  enduro þá hefði ég skoðað dagatalið til að athuga hvort það væri ekki fyrsti apríl. 

Sjáið þennan hestaslóða hann er geðveikur þar sem hann hlekkjast um hlíðarnar  með mjög flottum beinum köflum sem eru upplagðir til að smella í sjöttagír og slaka aðeins á og láta upp pumpið líða úr framhandleggjunum hehe eða bara kreista ennþá fastar og nota hann til að ná gaurnum sem grillaði mann í móanum rétt áður .
,

Hestaslóðarnir þarna eru eitthvað sem ég kalla forréttindaslóðar og þó ég hafi miklu meira gaman að aka um í einstígum þá hafði ég ekki stjórn á mér á þessum slóðum og tók slóða þeyting dauðans þarna VÁÁÁÁÁ.... hvað það var spennandi.

 Við vorum allir á ólíkum hjólum þar að segja þá er var Hjörtur á KTM 250 2-T XC Einar á Husaberg FX450 crosshjóli og ég á Husaberg fe 450 endurohjóli svo það var mjög fróðlegt að sjá hversu vel svæðið hentaði okkur öllum
sem ætti að leggja línurnar með að brautin er vel opin með flottu flæði skemmtilegu enduro sem lét mann alveg svitna en á sama tíma engar óyfirstíganlegar torfærur.

Þetta er svona eitthvað sem maður verður að taka þátt í þar sem ég er ekki viss hvort akkúrat svona svæði fáist aftur til keppnishalds ekki það að ef ég verð ekki að vinna við þessa keppni þá verð ég á ráslínu ekki til að fara í týpíska endurokeppni heldur til að fara í alvöru endurotúr eða eins og Árni #100 mundi segja "FREE RIDE DAUÐANS" og er þá ekki tekið of stórt uppí sig þetta verður klárlega ein af þessum keppnum sem menn tala um í framtíðinni fyrir frumleika og góða skemmtun.

PS:Hardenduro.tk skorar á Einar#4 að láta af þeim áformum um að ætla að vinna við þessa keppni á keppnisdag og koma sér frekar út í braut að leika ..........

EITTHVAÐ FÓR ÞETTA FRAM HJÁ MÉR

07. ágúst 2010 klukkan 10:09
Hvernig tókst mér að sjá þetta ekki!!!
GAS GAS EC 300 2011 er fáanlegt með rafstarti sem er klárlega gríðarlegur kostur en eitthvað fór það framhjá mér þegar ég var að skoða allt um þessi hjól hér um daginn.
Hér er en einn youtubarinn og er hann af EC 300 það eru svo frábærir hlutir að gerast hjá flest öllum evrosku hjólaframleiðendunum að maður hefur ekki undan að pæla í nýjungum og flottum breytingum.

Þessi færsla er læst með lykilorði.

06. ágúst 2010 klukkan 21:53

NATHAN WOODS Í LAS VEGAS ENDUROCROSS

06. ágúst 2010 klukkan 11:46
hér er á ferð flottur youtubari af Nathan Woods á nyja Husaberg  FX 450 þar sem hann fór á kostum í síðasta Endurocrossi sem fram fór  í Orleans Arena, Las Vegas .

FLOTTUR 2-T YOUTUBARI HÉR Á FERÐ

04. ágúst 2010 klukkan 21:28
Hér höfum við youtubara úr Ameríkuhreppi sem tiltekinn Gas-Gas 2-T klúbbur hefur póstað inn .
Flott endurobraut hjá þeim og djöf væri ég til í að komast í skógar enduro-trialið sem fer þarna fram þegar líður á youtubarann.
Torkið og sterk mótor miðjan í GasGas power bandinu nýtur sín vel þarna þar sem þeir eru að skjóta sér uppá steininn og yfir trábolinn inní skóginum greinilega vel krefjandi braut. 

Það er nokkuð ljóst að tuggan verður trekt í gang á morgun og brunað beina leið í Bolöldu þar er alltaf hægt að koma sér í góð endurovandræði.

HVAÐ ER Í GANGI HÉR?

03. ágúst 2010 klukkan 20:54
Nú keppast flestir netmiðlar um að birta fyrstir myndir og upplysingar um nýjasta undur enduroheimsins og er það svo sem ekkert skrítið KTM EXC 250 tvígengishjólið er vægast sagt spennandi og útlitið minnir einna helst á eitthvað klámfengið.
Hér höfum við nyjasta stellið frá KTM sem aðeins hefur hingað til sést í 350 fourstrokehjólinu.
hjólið er með CNC fræstum factory klemmum sem er með nýjum stillingum það er komið með sömu dempara og hafa aðeins sést hjá Husaberg og eru með extra miklu flæði, hjólið er komið með link á afturdemparann sem er algjör nýjung hjá KTM og verður mjög spennandi að prófa þá fjöðrun, hjólið er komið með nýjasta plastið sem er heldur betur mikið meistaraverk og prýðir það hrikalega flottu límmiðasetti, hjólið er með fatbar með millistöng sem er nýjung hjá KTM.

Hjólið  er sagt með 12,5 lítra tank það kemur með mjög vandaðri plastmótorpönnu  það kemur með gold CNC fræstum nöfum og síðast en ekki síst er hjólið komið með diskahlífar sem engin maður hefði trúað að kæmu aftur inn í tískuheim enduromannsins.
Ef myndin er skoðuð vel sést að aftur demparinn er komin með aukastilliskrúfu uppi sem bendir til þess að þar sé geimíum fjöðrun í gangi.
Hjólið er orðið sexgíra eins og flestir vita kom sú breyting núna í síðustu útfærslunni frá KTM .
Orðrómur enduroslóðans segir að hér sé komið tvígengishjól með innspýtingu  og vigti 98 kg en það hefur ekki fengist staðfest í Rofabænum en sem komið er .

HARDENDUROSPJALLIÐ

.