Prófíll

  • Nafn: MR HARD

Auglýsing

.

Innskráningar kubbur

ATHYGLISVERÐAR SÍÐUR

ÞAÐ ER BETRA AÐ EIGA EN VANTA ÞEGAR AÐ 2-T KEMUR

19. mars 2010 klukkan 11:44
Loksins rennur tvígengis blóð um æðar mér .
Mr Hard er ekki ósvipaður hrafninum hann er alltaf að draga eitthvað heim í hardendurohreiðrið sitt.
Eftir miklar pælingar um hvað Mr Hard langaði í og allir kostir skoðaði út í eitt stóð GAS GAS EC 250 upp úr svo úr varð að uppí JHM-SPORT var haldið og fest kaup á nýjasta Hardenduro ævintýrið.

Það sem varð til þess að GAS GAS varð fyrir valinu eftir nokkra umhugsun eru samofnir þættir snilldar hönnunar þessa rótgróna trialframleiðanda sem hefur í gegnum árin fært hinu geysimönguðu trialtækni beint úr trialhjólinu yfir í endurohjólið með miklum ágætum og þar sem það er jú verið að leita af hjóli sem hentar vel við erfiðar enduroaðstæður þar sem mikið tork og góð spilun í fjöðrun skiptir miklu máli og á sama tíma verður að vera hægt að brúka tækið við slóða þeyting og alla almenna endurogleði.

Þetta er útlitið á hjólinu í grófum dráttum fyrir utan gjarða og dempara lit.
Förum aðeins yfir þá fítusa og kosti sem gliti hvað mest í þegar úrslíta atlagan var gerð um kaup á hardendurotækinu.

Byrjum á mótornum hann er 250 kúbic og snýst mjög vel en er á sama tíma afar þýðgengur kveikjubreytingar takki er á stýri til að breyta úr race í tork með einu handtaki og kemur þá extra torkmikil kellari fram sem verður til þess að hjólið er hægt að kæfa endalaust og fyrir vikið þarf ekki að fara um viðkvæma slóða (í Bolöldu )án þess að það sjáist á þeim að hjól hafi farið yfir jú því eins og allir vita sem hafa átt torklaus hjól þá er mjög fín lína milli þess að menn stolli hjólin og eða fari um á stóru gjöfinni með þeim afleiðingum
að allt er í kásu eftir þá.

Gírkassi er sexgíra og er það algjör snilld að hafa sjötta gírinn þegar að ferjuleiðunum kemur en á sama tíma er fyrsti gírinn með endæmum lár þetta er kassi sem allir ættu að finna gír við sitt hæfi.
Likt og í öllum fullsmiðuðum endurohjólum er vökvakúpling og kemur ekki til greina aða fá sér hjól með barka eftir að vökvinn hefur verið prófaður.
Tankurinn er með glæran neðri part svo auðvelt er að átta sig á því bensínmagni sem eftir er .
Fjöðrunin er mér enn algjör ráðgáta þar sem nokku stífir gormar eru í hjólinu 4,8 mm en á sama tíma mjög opnir ventlar svo nú verður gaman að sjá hvernig hún kemur út síðasta Gas-Gas 300 (árg 2006) sem ég var með var með 4,5 gorma og 200 Gasið(árg 2006) sem ég átti þar áður var með 4,2 gormum að framan svo nú verður spennandi að sjá munninn og rifja aðeins upp gömlu Gas-Gas taktana.

MIÐVIKUDAGS TRIAL Í KVÖLD

17. mars 2010 klukkan 11:45
Allir velkomnir farið af stað kl 17:30 .
Allir sem að trialhjóli geta valdið eru velkomnir

Hér er eitt gott fyrir kvöldið fengið hjá honum Valda #270 það er greinilega allt hægt á Husaberg jafnvel urban trial ....eða hvað

Þessi færsla er læst með lykilorði.

17. mars 2010 klukkan 09:36

VALKVÍÐI MR HARDS

16. mars 2010 klukkan 12:05
Já þeir eru þungir þankarnir þessa dagana hjá mr. Hard enda er ekki nein smá ákvörðun sem þarf að taka.
Það er nefnilega komið að vorboðanum í hardenduroklúbbnum en eins og allir vita þá skiptir refurinn og rjúpan um lít á vorin og líkt og hin viltu dýrin í nátturunni skiptir MR HARD úr fourstroke í twostroke á hverju vori.
Vorið 2010 er enginn eftirbáti síðustu ára og nú skal látið sverja til stáls já enn eitt 2-T sumarið framundan og nú spyrja sumir afhverju 2-T þegar 4-T er til í skúrnum og svarið er einfalt ......á ekki að vera gaman í sumar?
En nóg um það, hér eru nokkrar pælingar um hvað ég er að leita af og svo skoðum við hvað er boði.
Nú það sem ég er að leita af er mikill léttleiki flott afl og skýr krafa um góða fjöðrun.
Mér persónulega hefur reynst best 250CC mótorinn, búinn að vera með 300cc og fannst sú kúbicastærð  ekki góð við hardenduro aðstæður en flott á slóða en mínusinn við 300cc er kanski smá púls og víbringur.
Ég var með 200cc árið 2004 og var það geggjuð kúbicastærð við flest allar aðstæður fyrir utan að það vantaði alltaf smá uppá powerið fyrir minn smekk.
Eftir að ég fékk mér ECX 250 2008 komst ég að því að það er mín stærð af mótor svo 250cc verður það aftur.
Nú skulum við sjá hvað er til af 2-T hjólum í landinu og hvað þau hafa uppá á bjóða.
Það virðast bara vera fjórir framleiðendur sem bjóða uppá 250cc 2T endurohjól í dag og það eru TM, KTM, GASGAS og HUSQVARNA. 
Skoðum aðeins hjólin betur.

TM RACING 250 ENDURO

Kostir:  Svakalega öflugur mótor, miklir möguleikar í sambandi við val á fjöðrun, glær tankur, fatbar, vökvakúpling, spess pípa,
101 KG ,Blöndungur: Keihin PWK 38
Ókostir: hjólið er bara 5 gíra, ekki til á lager sem stendur.

HUSQVARNA 250 ENDURO


Búinn að lesa mikið um Huskann og koma tvígengisendurohjólið vel út 
það  kom  mér mest á óvart að það hefur ekki verið nein stór breyting á þeim í mjög langan tíma .
Kostir: Marzocci demparar að framan en SAX dempari að aftan. Hjólið er 103 kg, og bensíntankurinn er 9,5 lítra
Ókostir : Mikuni TMX 38 blöndungur og hef ég hræðilega reynslu af því merki (skipti mikuniunum út fyrir oko í trialhjólinu hjólið var bara alltaf latt og óreint með Mikuni) svo er það gírkasinn hann er bara fimmgírar. Hjólið er ekki til á lager.
 
KTM EXC 250 ENDURO

 

Kostirnir eru margir og hef ég mjög fína reynslu af þessu hjóli.
Kostir:  9,5 lítra tankur, hjólið vigtar 101 kg og hjólið kemur með Keihin PWK 36 blöndung flottur frágangur á öllu.
Ókostir:  5 gírakassi, ekki til á lager, nýbúinn að vera með 2008 hjól og virðast litlar sem engar breytingar vera á milli árgerða Ekki til á lager.

GAS-GAS EC 250 ENDURO


Kostirnir eru margir og hef ég nokkuð góða reynslu af þessu merki.
Kostir: Keihin 38 mm blöndungur,sex gírakassi sem er frábært, það er hægt að velja um dempara t,d Sac Marzooci og tel ég það vera stóran kost hjólið kemur með 9,5 lítra tank og vigtar 101kg hjólið er til á lager.
Ókostir:  Hægt er að velja fjögur útlit tvær gerðir af pústum og þrjár gerðir af dempurum og tvær týpur af felgum veldur þetta miklum valkvíða hjá Mr Hard svo ég verð að setja það undir ókost þótt flestum finnist þetta vera kostur að vera ekki á eins hjóli og allir hinir.
 
Já nú er bara að sofa aðeins á þessu og leggja svo sitt á vogarskálirnar til að örva hagvöxt í samfélaginu með því að versla frekar en að spara og ef við hugsum öll þannig þá kemst verslun aftur á stað hjá hjólaumboðunum á sama tíma og við eignumst eitthvað skemmtilegt.
Svo er bara að taka Ólaf Ragnar á þetta og skella sér annað hvort á gott kúlulán eða hagstætt erlend myntkörfulán.....

ALLT AÐ GERAST HJÁ GAS-GAS UMBOÐSAÐILANUM

14. mars 2010 klukkan 10:00
Ekki nóg með að JHM-sport sé búið að uppfæra hjá sér heimasíðuna svo hún er klárlega sú allra flottasta sem umboðin bjóða uppá  þá er Jón Magg greinilega í miklum víga hug hvað Gas-Gas varðar og er að gera mjög góða hluti fyrir okkur hjólamenn verðin á 2010 Gas-Gas hjólunum er hreinlega ótrúleg.
Skoðið nyju síðuna hjá www.JHMsport.is

Eftir að nýjir eigendur tóku við stjórnartaumunum hjá Katalónska framleiðandanum hefur GAS GAS slegið í gegn með nýju útliti hjólanna. 2010 línan hefur fengið alveg nýtt útlit. Svarti liturinn og ný grafík ásamt svörtum felgum í stíl er ætlað að færa GAS GAS nærri Japönsku tískuframleiðendum um hylli viðskiptavina.

Hjólið hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir góða akstureiginleika og flottU útliti en hægt er að panta GAS GAS með rauðum dempurum í stíl við rauða litinn í plöstunum. EC 250 4T GAS GAS er útbúið vél frá Yamaha en GAS GAS hefur átt í samstarfi við marga framleiðendur í gegnum tíðina og nú Yamaha. Hjólið hefur fengið mikla athygli og lof gagnrýnenda í Evrópu. Það er léttara í akstri og meðhöndlun en EC 450 4T og krafturinn í mótornum frá Yamaha er mjög góður að sögn
sögn gagnrýnenda
JHM Sport býður nú viðskiptavinum sínum vel útbúin Enduro og Trial hjól frá Gas Gas á frábæru verði.
 Gas Gas EC 300 2T Verð 1.470.000.-
Gas Gas TXT 280 Pro Verð 1.170.000
Gas Gas EC 250 4T Verð 1.570.000.- (Yamaha vél, vökva kúpling)

TRIAL INNDOR KEPPNIS PLANIÐ FYRIR 2010

14. mars 2010 klukkan 09:31
Tony bou virðist vera orðinn óstöðvandi á Montesa fourstroke trialhjólinu og raðar niður sigrunum þessa dagana en aldrei er Adam Raga langt undan og heldur gríðarlegri pressu á Bou .

Hér er indoor trial keppnis planið fyrir 2010 það er eitthvað búið af keppnum og er hart barist
líkt og á síðasta  ári eru  þeir Tony Bou á Montesa og Adam Raga á Gas Gas í sérflokki.

2010 SPEA FIM INNDOOR TRIAL WORLD CHAMPIONSHIP
Round 1 Sheffield - Great Britain 09 January - Saturday
Round 2 Marseille - France 23 January - Saturday
Round 3 Barcelona - Spain 31 January - Sunday
Round 4 TBA - TBA 20 February or 06 March - Saturday
Round 5 Madrid - Spain 13 March - Saturday
Round 6 TBA - TBA 20 March - Saturday
Round 7 Palma - Majorca 27 March - Saturday

Hér er loka staðan fyrir 2009 og var það Tony Bou sem sigraði innanhústrialið
2009 FIM championship final standings:
1: Bou 38
2: Cabestany 25
 3: Raga 25
4: Fujinami 22
5: Fajardo 18

Þessi færsla er læst með lykilorði.

13. mars 2010 klukkan 00:04

ER DAVID KNIGHT ORÐINN ÓSTÖÐVANDI AFTUR?

12. mars 2010 klukkan 23:11
Farioli KTM ökumaðurinn David Knight sigraði í fyrstu umferð af the  Metzeler ACU Breta Enduro Championship, veðrið lék stóran hluta vegna rigningar og fyrir vikið varð mjög mikil leðja yfir öllu .
special testin voru mjög krefjandi og var það mjög sætur sigur hjá Knight að sigra þau með um 20 sec á fyrrverandi heimsmeistarann Paul Edmondson og fyrrverandi Evrópu meistari Daryl Bolter.
Þrátt fyrir slæmt veður sagði Knight það vera ljóst að hann myndi hafa verk  að vinna fyrir keppnina því það að vinna í jafn krefjandi aðstæður myndi ekki verða auðvelt  í jafn stórum hóp af góðum ökumönnum.

David Knight sagði eftir keppnina :"Þrátt fyrir að veður hafi ekki verið að gera sitt besta  var ég mjög vongóður um að ég myndi hafa sigur í dag aðstæður voru mjög  sleipar  en ég náði nú samt að njóta þess í dag að vera að keppa og gerði það sem þarf til að sigra í dag".

FIMMTUDAGSGETRAUNIN ENDUROFRÓÐI

12. mars 2010 klukkan 22:26
Nú er kominn tími á endurofróða hér er á ferð fréttamynd sem fór eins og eldur um sinu hér um árið.

Spurt er að þessu sinni um menn, hjól, stað og stund.
Nr 1. Hverjir eru þessir lánsömu enduromenn?
Nr 2. Hvaða ár var þessi mynd tekin?
Nr 3. Hvar var myndin tekin?
Nr 4. Bónus spurning hvaða tegund er þyrlan á myndinni?

KLAUSTUR 2010

12. mars 2010 klukkan 22:02



Ein fjölmennasta íþróttakeppni og langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi Hvítasunnuhelgi. Keppnin sem síðast var haldin árið 2007 laðaði að sér hátt í 500 keppendur og verður því kærkomin viðbót í keppnisalmanak mótorhjólafólks. Vélhjólaíþróttaklúbburinn og MSÍ ( Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands) standa að keppninni ásamt landeigendum. Keppnin verður haldin 23. maí n.k. í landi Ásgarðs sem er skammt frá síðustu keppnisbraut. Gengið hefur verið frá 5 ára samningi við landeigendur um keppnishaldið og er stefnt að uppbyggingu varanlegrar aðstöðu fyrir keppendur og áhorfendur. Samningurinn er lyftistöng bæði fyrir sportið, og ekki síður ferðamennsku á svæðinu. Ábúendur á Ásgarði og fleiri samstarfsaðilar á svæðinu eiga bestu þakkir skyldar fyrir að bjóða hjólafólk velkomið á landið sitt.

Markmið Vélhjólaíþróttaklúbbsins er að halda skemmtilega keppni við allra hæfi og laða að jafnt keppendur sem og aðstandendur þeirra, og búa til sannkallaða fjölskylduskemmtun. Það er ennfremur mikilvægt markmið að skipulag  og umgengni á svæðinu öllu verði til fyrirmyndar. Áhersla verður lögð á gott samstarf við landeigendur og aðra samstarfsaðila á svæðinu.

Undirbúningur er þegar hafinn og komnar eru grófar línur um keppnisbraut sem liggur núna nær þjóðveginum.  Keppendur og áhorfendur munu því geta fylgst mun betur með keppninni en fyrr.

Keppnin hefst kl. 12 á hádegi og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar eða kl. 18. Þolakstur á mótorhjólum er ein erfiðasta íþróttagrein heims og keppnin því langt frá því að vera auðveld, þó svo skemmtunin sé lykilatriði flestra þátttakenda.
Keppt verður í nokkrum flokkum s.s. einstaklingsflokki, en sigurvegarinn þar fær sæmdarheitið „Járnkarlinn" að keppni lokinni, enda gríðarleg þolraun að keppa einn í 6 tíma í keppni sem þessari. Einnig verður keppt í tveggja og þriggja manna liðum.  Veitt verða ýmiss skemmtileg verðlaun s.s. í flokki þar sem foreldri og barn keppa saman, eða þar sem samanlagður aldur tveggja er 90 ár eða hærra, og í  flokki þriggja þar sem samanlagður aldur keppenda er 135 ára eða meira.
Það verður því stutt í léttleikann og stemninguna þegar menn safnast saman í grennd við Kirkjubæjarklaustur um Hvítasunnuna 23. maí n.k.

Skráning í keppnina fór fram á vefnum www.motocross.is og hófst skráningin kl. 22 þann 10. mars og sólahring seinna var orðið uppsellt og 400 manns skráðir til leiks

SPJALLBORÐIÐ KOMIÐ Í GANG

12. mars 2010 klukkan 20:02
LOKSINS LOKSINS nú er hardenduro spjallborðið komið í gang og er það öllum opið en menn þurfa að sjálfsögðu að skrá sig þar inn og hvet ég alla til að skrá sig inn og nota það því þetta er eitthvað sem hefur vantað fyrir trial og enduromenn.
Mr hard biður menn að vera málefnalega og allt skítkast er stranglega bannað sem sagt bara jákvæðni leyfð á spjallinu Smile 
Fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því þá er sallborðið hér til hægri.

EKKERT ENDURO FÆRI

12. mars 2010 klukkan 20:01

Nokkuð hefur verið um að ökumenn festi sig á vegaslóðum sem eru blautir og leðjumiklir á eftir hlýindin undanfarið.
Lögreglan í Borgarfirði hefur t.a.m. þurft að losa nokkra ökumenn sem fest hafa sig í leðju undanfarið. Bendir lögreglan vegfarendum á að hafa varann á er þeir aka fáfarnari leiðir. Þá borgi sig ekki að treysta gps-staðsetningartækjum í blindni, þau velji oft stystu leið - ekki endilega besta veginn.
Það er ekkert endurofæri í og við bæinn og verða menn að halda sig við sandinn í Þorlákshöfn enda er endurhringurinn þar bara nokkuð góður.
Ef við förum of snemma á stað erum við bara að eyðileggja fyrir okkur sjálfum það er ekkert leiðinlegra en djúpir skorningar í annars skemmtilegum slóða.

Nú er bara að vona að leðjan og vatnsflaumurinn fari að víkja fyrir vorinu og slóðarnir í Bolöldu opnist snemma þetta árið.

Þessi færsla er læst með lykilorði.

12. mars 2010 klukkan 19:51

MR HARD KOMINN ÚR FRÍ

30. janúar 2010 klukkan 12:29
Jæja þá er fríið búið og sá Harði að komast aftur á ról.
Það eru ekki miklar breytingar framundan á síðunni í bráð fyrir utan að hér verður trúlega spjallborð þar sem allt um hardenduro og trial verður rætt og er það þá undir þér lesandi góður að halda umræðunni lifandi!

HARDENDUROSPJALLIÐ

.