TM SIGUR Á AKUREYRI
19. júní 2010 klukkan 23:42
TM ökumaðurinn Kári Jónsson gjörsigraði aðra umferð í Íslandsmótinu á Akureyri í dag honum var aldrei veitt keppni og var hátt í þrjármínutur á undan næsta ökumanni sem var Björgvin Stefánsson í þriðja sæti varð ungur og uppkomandi Daði Elingsson komandi endurostjarna sem ekki hefur mikið farið fyrir í toppbaráttunni fram að þessu í endurosportinu.

Nú er svo komið í íslandsmeistaramótinu að nánast ekkert getur stöðvað TM ökumanninn Kára Jónsson frá því að taka við íslandsmeistaratitlinum fyrir 2010 seasonið.
Í tvöhundruð og fimmtíu flokknum sigraði Björgvin Stefánson Annar varð Bjarki Sigurðsson frá Akureyri og í þriðjasæti varð útsendari hardenduro.tk Árni #100 sem er einmitt eini keppnismaður safnaðarins eftir að Kári Jóns fór fram á Háar peningagreiðslur fyrir að aka undir merkjum hardenduro fyrir árið 2010 líkt og hann hefur gert síðastliðin fjögur ár.
http://teamsilicon.is
Elli
Frábær keppni og brautin frábær en ég verð að segja að þetta er að verða þreitt með Einar sig og félaga þegar þeir mæta á mótstað og hella sér yfir keppnis stjórn og aðstandendur keppninnar vegna þess að brautin er ekki þeim að skapi . Fyrir mína parta sem lagði vinnu og tíma í að leggja brautina og alla sem lögðu enn þá meiri vinnu í mótið er þetta fyrir neðan alla hellur og verður bara erfiðara fyrir vikið að fá fólk til að vinna að svona mótum . Nú spyr ég hvort er mikilvægara fyrir sportið 25 manns sem vinna að svona móti eða ein til tvær pissudúkkur sem fara í fýlu og vilja ekki vera með . Ef menn vilja leysa svona mál þá þarf bara að vera skipaður eftirlits frá msí til úttektar á brautum svo að allur vaft sé tekinn af efiðleikastuðli brautarinnar . En þá ætti líka að taka upp rauð og gul spjöld til að víta menn sem eru með leiðindi á mótstað og útiloka þá frá frekari mótum .En annars vil ég óska Kára jóns til hamingju með sigurinn og þar fer Enduromaður íslands sem kann að aka í krefjandi aðstæðum .
#1
20. júní 2010 klukkan 11:42
full af flottum myndum komnar inná www.mxmyndir.is
#2
21. júní 2010 klukkan 13:40
#3
21. júní 2010 klukkan 16:16
Góður punktur hjá þér Elli með eftirlitsmanninn, auðvitað ætti MSÍ að skipa eftirlitsmann sem tekur út allar brautir fyrir keppni.
Norðanmenn gáfu það út sjálfir fyrir keppni að það yrði engin mýri en stóðu ekki við það og höfðu mýrina, getur verið rosa flott fyrir þá sem standa á hliðarlínunni og jafnvel fyndið að sjá menn urlast á hausinn en ekki eins fyndið fyrir þá sem þurfa að borga skemmdir á hjólunum sínum eða meiðast.
Svona mýri á ekki heima í almennri endurokeppni, er flott í hardendurokeppi.
Ef ég man rétt þá stendur í reglum að braut eigi að vera öllum hjólum fær, þessi mýri býður held ég ekki uppá það.
Þau félög sem standa að keppnishaldi eiga að þrýsta á MSÍ með eftirlitsmann, þá geta þeir sem eru ósáttir átt það við hann og MSÍ og þá leggur líka MSÍ línurnar með erfiðleikastigið, það er aldrei gott að ráðast á þá sem starfa við keppnirnar því það verða engar keppnir án sjálfboðaliðana.
Tökum Klausturskeppnina síðustu sem dæmi, ef þessi mýri á Klaustri verður aftur svona á næsta ári þá tími ég ekki mínu hjóli í hana.
Góðar stundir

#4
23. júní 2010 klukkan 00:53